11.2.2012 | 00:41
Á þjóðinni að finnast þetta í lagi Jóhanna?
Hvernig er hægt að réttlæta þetta?
Er ekki venjan að fólk sem stendur sig vel í starfi fái launahækkanir og hinir séu látnir fara?
Það er kannski þetta sem hún átti við með því þegar hún sagði að allt væri á uppleið í landinu, það er ekki skrýtið að þessu fólki finnist ástandið ekki slæmt þegar laun þeirra hafa hækkað um meira síðustu þrjú ár heldur en margir hafa í heildartekjur á mánuði.
Þessi ríkisstjórn á eftir að tryggja aðra kreppu á Íslandi áður en hún hröklast frá völdum. Ef ekkert verður að gert fljótlega verður hér ekki búandi í langan tíma á eftir og mun unga fólkið halda áfram að flýja land í stórum stíl.
Hunskist þið frá völdum áður það er um seinan, þið svokölluðu jafnaðarmenn sem eruð hér allt að drepa.
Laun forsætisráðherra hækkuðu um 217 þúsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.