4.3.2012 | 12:17
Það verður að kjósa nýja stjórn
Í skoðannakönnun hjá Gallup kom það í ljós að ríkisstjórnarflokkarnir hafa minn fylgi samanlagt heldur en Sjálfstæðisflokkurinn, þetta hljóta að vera skilaboð til stjórnarflokkanna að fólkið í landinu vill breytingar.
Vinstri flokkarnir hafa algjörlega klúðrað tækifæri sínu til þess að sannfæra þjóðina um að þeirra aðferðir við að stýra landinu séu betri og hafa svikið öll loforð um gagnsæi í störfum sínum. Þjóðin vill frekar fá Sjálfstæðisflokkinn aftur í stjórn þrátt fyrir að trúa því að hann beri stærsta ábyrgð á flestu sem hér fór úrskeiðis sem leiddi til hrunsins sem hér varð.
Stærsta áhyggjuefnið hlýtur samt að vera að innan við helmingur aðspurðra vildi kjósa þá flokka sem í boði eru. Almenningur hefur algjörlega misst traust sitt á störfum þingsins og á meðan fólkið sér ekki árangurinn sem ríkisstjórnarflokkarnir halda fram að hér hafi náðst mun reiðin í þjóðfélaginu halda áfram að aukast og andlegt ástand þjóðarinnar versna með degi hverjum.
Þjóðin verður að fá að kjósa sem fyrst.
Segir Alþingi orkulaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2012 | 21:19
Og enn lýgur hann
Það er ekkert að marka hvað þessi maður segir orðið, hann man ekki lengur hverju hann er búinn að ljúga og virðist ekki komast frá nokkru viðtali án þess að upp komist um lygi. Hversu lengi á þjóðin að þurfa að hlusta á þetta rugl?
Ríkisstjórnina burt!
Tilnefningarnar klárar eða ekki? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.3.2012 | 21:15
Landsbankinn okkar?
Nú ætlar Landsbankinn að halda áfram að senda út greiðsluseðla þrátt fyrir að búið sé að dæma vaxtarreikning á gengislánum ólöglega. Hvernig getur það verið að bankinn sem er í eigu þjóðarinnar kemst upp með að haga sér svona gagnvart lántakendum.
Hvernig stendur á því að ríkisstjórnin gerir ekkert til þess að stöðva þetta rugl? Hversu lengi á þjóðin að þurfa að sitja undir þessu rugli?
Hér stefnir allt hraðbyri í aðra kreppu og ef ekkert verður að gert verður annað hrun hér innan 5 ára, það er klárt mál. Verðbólgan vex og krónan lækkar meira og meira í hverjum mánuði og verðlagið á öllum nauðsynjavörum rýkur uppúr öllu valdi og það eina sem ríkisstjórninni dettur í hug að gera er að hækka skatta og gjöld og þar með vísitöluna með.
Alþingi er algjörlega máttlaust og þingmenn halda áfram að eyða tíma sínum í mál sem skipta ekki nokkru máli fyrir íbúa þess lands og sjá ekki viðvörunarmerkin sem sjást í flestum spám og allir í kringum okkur hafa áhyggjur af, m.a hið æðislega ESB sem annar ríkisstjórnarflokkurinn sér ekki sólina fyrir.
Sundrung í nýju stjórnmálaafli sem margir vonuðu að yrði ný von í stjórnmálum landsins minnir helst á vinnubrögðin á þingi þar sem baktjaldamakk og bakstungur virðast daglegt brauð.
Kosningar strax!
Sendir áfram út óbreytta innheimtuseðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.2.2012 | 08:29
Frábært framtak
Þarna er komin góð hugmynd og vona ég að fjármögnun verkefnisins gangi hratt og örugglega fyrir sig svo að þetta gangi sem allra best.
Á Suðurnesjunum vantar störf og þarna væri hægt að nýta stórt og mikið húsnæði sem stendur bara og bíður eftir að komast aftur í notkun.
Gangi ykkur rosalega vel með þetta verkefni.
200 störf við að mála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2012 | 15:48
Áfram með barnaskapinn
Þingmenn landsins halda áfram að haga sér eins og krakkar í sölum Alþingis og nú um má sem ég hélt að allir vissu af.
Voru ekki tugir mótmælaskilta geymd inná skrifstofu Vinstri Grænna á milli mótmæla? var ekki fjallað um það að þingmenn væru að hvetja fólkið til þess að mótmæla ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í byrjun árs 2009?
Hvernig stendur á því að Steingrímur og félagar ráðast á æru manns sem staðið hefur vörð um Alþingi í gegnum öll mótmælin með miklum sóma og hefur alltaf komið mjög vel fram við allt og alla. Er það vegna þess að hann hyggst bjóða sig fram til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn?
Er ekki jákvætt að góður maður sjái að hann geti gert gagn í stærsta stjórnmálaflokki landsins eða haldið þið að sá flokkur fái ekki betri kosningu heldur en þeir flokkar sem stjórnað hafa landinu síðustu 3 ár með misjöfnum árangri?
Kæru þingmenn þið gerið ekkert til þess að auka trú eða traust fólksins á störfum ykkar og ættuð að sjá sóma ykkar í því að boða til kosninga ekki seinna en strax!
Klámhögg og lygar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
25.2.2012 | 00:44
Þvílíkt rugl!
Ég get ekki annað sagt um þessa ræðu Steingríms en að hann hlýtur að vera að tala um eitthvað annað land en það sem ég bý í og stærstur hluti Íslendinga upplifir ekki þennan svaka fína árangur sem maðurinn talar um þarna.
Langtíma atvinnuleysi er ennþá að aukast og verðbólgan er komin á skrið að nýju og ætlar þessi ríkisstjórn ekkert að gera til að stöðva það. Veruleikafirringinn er að ná alveg nýjum hæðum hjá stjórn landsins og þrátt fyrir að matsfyrirtæki séu farin að tala um versnandi horfur á efnahag landsins og ESB sjái fram á aðra kreppu á næstu árum þá heldur þessi maður ennþá áfram að reyna að ljúga að þjóðinni.
Ríkisstjórnina burt sem allra fyrst!
Björguðum Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.2.2012 | 09:38
Skelfileg staðreynd
Sem ríkisstjórn landsins virðist ekki geta skilið. Þingmenn virðast eingöngu mæta til vinnu til þess að hirða launin sín og er stærstur hluti þeirra algjörlega gagnslaus.
Heilaþvottur Jóhönnu og Steingríms er því miður ekki að virka á nema lítinn hluta þjóðarinnar sem bíður eftir því að eitthvað verði gert til þess að rétta hagkerfi landsins við, en verra er að það virðast flestir þingmenn og þá sérstaklega þingmenn stjórnarflokkanna trúa því að hér sé allt á réttri leið og réttast sé að eyða tíma sínum í að karpa um hverjum skal kenna um hrunið frekar en að reyna að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.
Hér vantar nýtt fólk og verður þessi leikskólaleikur sem þjóðin verður vitni að frá þingheimi að hætta og það strax, það gengur ekki að horfa bara á á meðan fleiri og fleiri fjölskyldur lenda í vanskilum og sjá enga lausn aðra en að flýja land.
Jóhanna og Steingrímur ættu að sýna sóma sinn í því að biðja þjóðina afsökunar og boða til kosninga strax.
Langtímaatvinnulausum fjölgar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.2.2012 | 19:48
Loksins loksins
Þá hefur vaxtahluti hina svokölluðu Árna Páls laga verið dæmdur ólöglegur og þarf enn á ný að endurreikna gengistryggð lán almennings og fyrirtækja.
Hversu mörg mistök mun þessi blessaða ríkisstjórn komast upp með að gera áður en hún er send heim? Vonandi er fólk búið að fá nóg.
Hversu margar fjölskyldur hafa misst heimili sín eða bifreiðar á uppboði vegna rangt reiknaðra lána á grundvelli þessara laga?
Hverjar eru líkurnar á því að einhver taki ábyrgð á þessu rugli frekar en öðru sem gerst hefur í þessu landi?
Til hamingju allir sem beðið hafa eftir niðurstöðu í þessu máli og vonandi tekur minni tíma heldur en síðast að reikna þessi blessuðu lán.
Ætli ríkisstjórnin hafi vit á því að setja lög sem stöðva fjármálafyrirtækin í því að hirða eigur fólks sem bíður eftir niðurstöðu úr sínum málum?
Vonum það besta.
Endurreikna þarf öll lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2012 | 00:41
Á þjóðinni að finnast þetta í lagi Jóhanna?
Hvernig er hægt að réttlæta þetta?
Er ekki venjan að fólk sem stendur sig vel í starfi fái launahækkanir og hinir séu látnir fara?
Það er kannski þetta sem hún átti við með því þegar hún sagði að allt væri á uppleið í landinu, það er ekki skrýtið að þessu fólki finnist ástandið ekki slæmt þegar laun þeirra hafa hækkað um meira síðustu þrjú ár heldur en margir hafa í heildartekjur á mánuði.
Þessi ríkisstjórn á eftir að tryggja aðra kreppu á Íslandi áður en hún hröklast frá völdum. Ef ekkert verður að gert fljótlega verður hér ekki búandi í langan tíma á eftir og mun unga fólkið halda áfram að flýja land í stórum stíl.
Hunskist þið frá völdum áður það er um seinan, þið svokölluðu jafnaðarmenn sem eruð hér allt að drepa.
Laun forsætisráðherra hækkuðu um 217 þúsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2012 | 23:02
Á þetta að vera grín?
Ólína þú hlýtur að vera að grínast!
Verðbólgan á uppleið, vanskil aukast, gjaldþrotum og uppboðum fjölgar og þú dirfist að reyna að ljúga svona að fólki.
Á sama tíma og því er haldið fram að atvinnuleysi fari minnkandi hafa aldrei fleiri verið á framfæri sveitarfélagana, öryrkjum fjölgar hratt og fjöldi námsmanna sem lifir á lánum frá LÍN eykst stórlega vegna þess að átak hefur verið í gangi til að koma fólki af atvinnuleysisbótum og á námslán.
Fleiri þúsund einstaklinga sækja vinnu erlendis til þess að framfæra fjölskyldu sinni á Íslandi og þú heldur að kreppan sé búin!
Á næstu mánuðum munu þeir sem frystu íbúðalán sín í þrjú ár í upphafi hruns fá fyrsta greiðsluseðilinn og mun stór hluti þessa fólks ekki geta greitt þann reikning, er kreppan búin hjá þessu fólki?
Ríkisstjórn þessa lands virðist ætla að halda áfram að drulla yfir almenning og koma fram við fólk eins og fífl og virðast fjármálastofnanir þessa lands ætla að gera það líka.
Ég held að það sé kominn tími til að almenningur rísi upp og mótmæli þessu rugli af hörku.
Ríkisstjórnina burt!
Kreppan er nefnilega búin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Eldri færslur
Af mbl.is
Innlent
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
Erlent
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
- Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu
- Flækingshundar auka áhuga á pýramídum
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust